Opin kerfi bjóða upp á ráðgjöf á uppsetningu miðlægrar auðkenningar bæði á útstöðvum og á netþjónum. Lausnirnar eru óháðar stýrikerfi og mjög sveigjanlegar.
Red Hat IPA / FreeIPA
IPA er skammstöfun sem stendur fyrir Identity, policy, audit. IPA lausnin byggir ofan á Red Hat Directory eða Fedora Directory server og veitir miðlæga stjórnun, single sign on og er óháð stýrikerfum.
LDAP Directory
LDAP Directory lausnir gera fyrirtækjum kleift að geyma ýmsar upplýsingar miðlægt um starfsemina, hvort sem eru forritastillingar eða notendaupplýsingar.
Tenging útstöðva
Ráðgjöf við tengingu ústöðva og þjóna við miðlæg auðkenningakerfi, hvort sem er LDAP, Kerberos eða Microsoft Active Directory.



