HP hefur sett upp hugbúnaðarsafn fyrir yum (Red Hat) og apt (Debian) sem gerir hugbúnaðaruppfærslur og viðhald mun einfaldara en áður var í gegnum Proliant Support Pack. Uppsetning er hæfilega einföld.
Náð í bootstrap.sh:
wget http://downloads.linux.hp.com/SDR/downloads/bootstrap.sh
Keyrð bootstrap script með viðeigandi viðfangi, miðar við proliant, getur einnig verið integritysupportpack
sh bootstrap.sh proliantsupportpack
Uppsettur hugbúnaður
yum install hp-health hp-ilo
Áhugaverðir pakkar
- hp-health - sendir sjálfvirkt póst á root ef að vélarbilun á sér stað, einnig með tól eins og hplog til að skoða IML annál
- hp-ilo - bætir svartíma á mús í ILO yfirtöku
- hponcfg - leyfir uppsetningu á ILO í gegnum skipanalínu
- hpacucli - veitir aðgang að stillingum Smart Array RAID stýringar í skipanalínu
- hpsmh - vefsíða sem sýnir stöðu þjónsins á myndrænan máta



